LOGOS á UTmessunni 2024

LOGOS verður með fyrirlestur á ráðstefnunni þar sem Fannar Freyr Ívarsson, lögmaður og einn eigandi stofunnar, fjallar um fjárfestingu í tækni og nýssköpun. Að auki verður LOGOS með sýningarbás á svæðinu.

Harpa, tónlistar - og ráðstefnuhús Reykjavíkur

UTmessan, einn stærsti viðburður ársins í tölvu- og tæknigeiranum, fer fram 2.-3. febrúar næst komandi í Hörpu.

LOGOS verður með fyrirlestur á ráðstefnunni þar sem Fannar Freyr Ívarsson, lögmaður og einn eigandi stofunnar, fjallar um fjárfestingu í tækni og nýsköpun. Fannar sérhæfir sig m.a. í ráðgjöf við nýsköpunarfyrirtæki og vísissjóði, þ.m.t. í tengslum við fjárfestingu og fjármögnun. Þá verður LOGOS með sýningarbás á svæðinu þar sem áhersla er lögð á kynningu á hugverka- og upplýsingatæknirétt sem og persónuvernd.

Upplýsingatækni, hugverkaréttur, fjarskipti og persónuvernd eru á meðal sterkustu starfssviða LOGOS, auk þess að vera þau svið lögfræðinnar sem hafa verið í hvað mestum vexti undanfarið.

Sérfræðingar stofunnar hafa mikla reynslu og menntun á þessum sviðum, sem nýtist viðskiptavinum með ólíkar þarfir og úr ólíkum atvinnugeirum. Samkvæmt álitsgjöfum matsfyrirtækjanna The Legal 500 og Chambers and Partners er LOGOS í forystu á þessum sviðum og með framúrskarandi orðspor.

Helstu sérfræðingar LOGOS á sviði upplýsingatækniréttar og persónuverndar veita nánari upplýsingar.

Ráðstefnudagskrá UTmessunnar.

Sérfræðingarnir okkar