Ný löggjöf: Umhverfismál og sjálfbærni

LOGOS og Viðskiptaráð Íslands halda námskeið þann 9. mars þar sem farið verður yfir þær breytingar sem hafa orðið og eru framundan á regluverki ESB/EES á sviði umhverfismála og sjálfbærni.

Blómstrandi trjágrein við sólarupprás

Miklar breytingar hafa orðið og eru framundan á regluverki ESB/EES á sviði umhverfismála og sjálfbærni. Breytingarnar setja umfangsmiklar kröfur á fyrirtæki sem mikilvægt er að kynna sér vel.

Á námskeiði Viðskiptaráðs og LOGOS munu Helga Melkorka Óttarsdóttir og Arnar Sveinn Harðarson veita sérfræðingum og stjórnendum upplýsingar um atriði og aðgerðir sem íslensk fyrirtæki þurfa að huga að í tilefni lagabreytinganna.

  • Staðsetning: Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35
  • Tímasetning: 9. mars 2023, kl. 9-11, morgunhressing frá kl. 8.30
  • Verð: 19.900 kr. fyrir aðildarfélaga Viðskiptaráðs, 28.900 kr. fyrir aðra

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið.

Sérfræðingarnir okkar