Um LOGOS

LOGOS, stærsta lögfræðistofa Íslands, liðsinnir viðskiptavinum sínum frá öflugum skrifstofum á Íslandi og í Bretlandi. LOGOS sérhæfir sig í þjónustu við íslenskt og alþjóðlegt viðskiptalíf og er jafnframt sú íslenska lögfræðistofa sem á sér lengsta sögu, allt aftur til ársins 1907. Þótt margt hafi breyst á þeirri rúmu öld sem liðin er, eru þau grunngildi sem stofnandinn, Sveinn Björnsson, síðar fyrsti forseti Íslands, hafði að leiðarljósi þó enn óbreytt. Heiðarleiki, fagmennska og metnaður eru sá grunnur sem velgengni LOGOS rís af, bæði hér heima og erlendis.

LOGOS Reykjavík

LOGOS Reykjavík hefur ótvíræða forystu í þjónustu við íslenskt atvinnulíf. Í umsögn frá alþjóðlega matsfyrirtækinu Chambers and Partners kemur fram að stærð stofunnar er þar ákveðið lykilatriði, sem og framúrskarandi gott starfsfólk, nútímaleg vinnubrögð og miðlun upplýsinga auk markvissrar uppbyggingar á alþjóðlegum mörkuðum. LOGOS færir viðskiptavinum sínum þann kraft og sveigjanleika sem þarf til að ná hámarks árangri hér heima auk náinnar samvinnu við að uppfylla metnaðarfull áform í útlöndum.

LOGOS London

LOGOS London er fyrsta útibú íslenskrar lögfræðistofu erlendis og hefur vegur stofunnar farið ört vaxandi allt frá opnun.  Verkefnin, sem eru flest á sviði fyrirtækjaráðgjafar, eru fjölbreytt og teygja sig allt frá Asíu til Bandaríkjanna, þótt meginþunginn sé í Bretlandi.