Deilumál fyrir enskum dómstólum – Boð á framsögu 22. nóvember nk.
LOGOS lögmannsþjónusta býður þér og samstarfsmönnum þínum á framsögu um meðferð deilumála í Englandi þriðjudaginn 22. nóvember nk. á skrifstofu okkar að Efstaleiti 5, Reykjavík. Fjölmörg deilumál í alþjóðlegum viðskiptum fara fram fyrir enskum dómstólum enda er stór hluti alþjóðlegra viðskiptasamninga undirorpinn enskum lögum. Meðferð deilumála fyrir enskum dómstólum er fyrir marga hluti ólík því sem íslenskir aðilar eiga að venjast og eru ýmis atriði sem þarf að varast sérstaklega.
Gefið verður stutt yfirlit yfir enska dómskerfið. Gerð verða skil á mismunandi hlutverkum Solicitor og Barrister. Hefðbundnu ferli deilumála verður lýst sem og snert á helstu atriðum sem aðgreina meðferð deilumála fyrir enskum dómstólum frá dómsmeðferð á Íslandi, sbr. reglum um gagnkvæma upplýsingaskyldu („Disclosure“), trúnaðarsamband („Privilege“), skyldur lögmanna gagnvart dómstólum o.s.frv.
Framsögumenn verða James Brown og Anna Huxster sem starfa á skrifstofu LOGOS í London og eru hluti af liði LOGOS sem sérhæfir sig í úrlausn deilumála. Þá mun Guðmundur J Oddsson hafa stutta framsögu um reynslu sína sem íslenskur lögmaður af þátttöku í deilumálum í Englandi.
Húsið opnar kl. 17.00. Framsaga hefst kl. 17.15 og er gert ráð fyrir að henni verði lokið um kl. 18.15. Boðið verður upp á léttar veitingar að framsögu lokinni.
Vinsamlegast tilkynnið mætingu með því að senda tölvupóst á Ingu Rögnu Ingjaldsdóttur, inga@logos.is, eigi síðar en föstudaginn 18. nóvember nk.
LOGOS lögmannsþjónusta