Fréttir

Iceland Investment Forum 201

6.6.2013

Þann 19. september nk. verður “Iceland Investment Forum 2013” á Waldorf Hilton hótelinu í London í samstarfi við Merger Market. Þar munu íslenskir og erlendir fjárfestar, fyrirtæki og opinberir aðilar fjalla um helstu hvata fyrir hagvexti og tækifærum á Íslandi.

Guðmundur Oddsson og Óttar Pálsson verða fulltrúar LOGOS á þinginu. Beina má spurningum og athugasemdum til þeirra í tölvupósti, gudmundur@logos.is eða ottar@logos.is.

Sjá nánar hér.

Móttaka í London

22.5.2013

Þann 23. maí nk. mun danski sendiherrann í Bretlandi bjóða til móttöku í samstarfi við norrænar lögmannsstofur í London, LOGOS, Kromann Reumert og Thommessen

Sjá nánar hér.

Nýr faglegur framkvæmdastjóri LOGOS lögmannsþjónustu

18.4.2013

Fréttatilkynning um nýjan faglegan framkvæmdastjóra hjá LOGOS.

Sjá nánar hér.

Chambers Global metur LOGOS í fremstu röð

14.3.2013

Enn á ný er LOGOS í fremstu röð þegar kemur að mati á lögfræðiráðgjöfum á Íslandi. Í dag gáfu Chambers Global út nýtt mat og er LOGOS metið í fremstu röð í öllum málaflokkum og eru margir af lögmönnum LOGOS tilgreindir sem leiðandi lögmenn á sínu sviði.

Chambers Global meta framúrskarandi lögfræðinga og lögmannsstofur í yfir 180 lögsögum og beina sjónum einkum og sér í lagi á þá lögmenn er starfa á alþjóðavettvangi.

Smellið hér til að sjá nánar.

The Global Awards Guide

24.5.2012

The Global Awards Guide leggur mat á velgengni fyrirtækja og einstaklinga sem þykja hafa verið leiðandi í alhliða lögfræðiþjónustu síðustu 12 mánuði. Eftir að hafa grandskoðað og rannsakað fjölda viðskipta, sem og frammistöðu og tiltæk gögn vandlega, þá hljóta þau fyrirtæki sem sýnt hafa stöðuga þróun og framúrskarandi vinnubrögð umrædd verðlaun. 

The Global Awards Guide hefur á þessum grunni valið LOGOS lögmannsþjónustu sem lögfræðistofu ársins 2012.

Global Awards Guide 2012

Móttaka í London

16.5.2012

Þann 24. maí nk., mun íslenski sendiherrann í Bretlandi bjóða til móttöku í samstarfi við norrænar lögmannsstofur í London, LOGOS, Kromann Reumert og Thommessen

Sjá nánar hér.

Bresk-Íslenska verslunarráðið – Tengslanet

17.2.2012

LOGOS lögmannsþjónusta og Icelandair standa sameiginlega að móttöku þann 15. mars 2012 í London. Markmið móttökunnar er að gefa meðlimum bresk-íslenska verslunarráðsins, og öðrum sem hafa áhuga á viðskiptum milli Bretlands og Íslands, tækifæri til að hittast og bera saman bækur. Guðmundur J. Oddsson hdl., yfirmaður skrifstofu LOGOS í London, mun hafa stutta framsögu um rekstur stofunnar í London.

Smellið hér fyrir frekari upplýsingar.

Opnunartími yfir jólin

20.12.2011

Opnunartími LOGOS um jólin er sem hér segir:

Reykjavík:
23. desember - lokar kl. 16:00.
27. desember- opnar kl. 10:00
2. janúar - opnar á hádegi

London:
26. desember - lokað
27. desember - lokað
2. janúar - lokað

Kaupmannahöfn:
26. desember - lokað

IFLR1000 metur LOGOS í fremstu röð

30.11.2011

IFLR1000 hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi. Voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS einnig taldir skara framúr á sínum sviðum.

Viðurkenningin endurspeglar álit viðskiptavina og keppinauta LOGOS, en IFLR1000 byggir mat sitt á rannsókn sem er unnin út frá víðtæku viðtalsferli.

Sjá nánar hér

 

IFLR1000

Deilumál fyrir enskum dómstólum – Boð á framsögu 22. nóvember nk.

17.11.2011

LOGOS lögmannsþjónusta býður þér og samstarfsmönnum þínum á framsögu um meðferð deilumála í Englandi þriðjudaginn 22. nóvember nk. á skrifstofu okkar að Efstaleiti 5, Reykjavík. Fjölmörg deilumál í alþjóðlegum viðskiptum fara fram fyrir enskum dómstólum enda er stór hluti alþjóðlegra viðskiptasamninga undirorpinn enskum lögum. Meðferð deilumála fyrir enskum dómstólum er fyrir marga hluti ólík því sem íslenskir aðilar eiga að venjast og eru ýmis atriði sem þarf að varast sérstaklega.

Gefið verður stutt yfirlit yfir enska dómskerfið. Gerð verða skil á mismunandi hlutverkum Solicitor og Barrister. Hefðbundnu ferli deilumála verður lýst sem og snert á helstu atriðum sem aðgreina meðferð deilumála fyrir enskum dómstólum frá dómsmeðferð á Íslandi, sbr. reglum um gagnkvæma upplýsingaskyldu („Disclosure“), trúnaðarsamband („Privilege“), skyldur lögmanna gagnvart dómstólum o.s.frv.

Framsögumenn verða James Brown og Anna Huxster sem starfa á skrifstofu LOGOS í London og eru hluti af liði LOGOS sem sérhæfir sig í úrlausn deilumála. Þá mun Guðmundur J Oddsson hafa stutta framsögu um reynslu sína sem íslenskur lögmaður af þátttöku í deilumálum í Englandi.

Húsið opnar kl. 17.00. Framsaga hefst kl. 17.15 og er gert ráð fyrir að henni verði lokið um kl. 18.15. Boðið verður upp á léttar veitingar að framsögu lokinni.

Vinsamlegast tilkynnið mætingu með því að senda tölvupóst á Ingu Rögnu Ingjaldsdóttur, inga@logos.is, eigi síðar en föstudaginn 18. nóvember nk.

LOGOS lögmannsþjónusta

Ísland - Nýtt tækifæri - málþing í London

6.10.2011

Bresk-íslenska verslunarráðið, þar sem Guðmundur J. Oddsson, eigandi og forstöðumaður London skrifstofu LOGOS, er í stjórn, hélt málþing fimmtudaginn 29. september 2011 í London, undir heitinu „Ísland – Nýtt tækifæri“.

Áhrifamenn í stjórnmálum, viðskipta-, fjármála- og orkugeiranum hittust í hjarta breskrar stjórnsýslu til að ræða framfarir Íslands eftir fjármálahrunið 2008, sem og til að meta horfur í efnahags- og viðskiptalífinu í framtíðinni.

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, flutti inngangsræðuna og í framhaldinu voru fluttar kynningar frá Má Guðmundssyni, bankastjóra Seðlabanka Íslands, Cyrus Ardalan, varaformanni Barclays Plc. og Helgu Valfells, framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs. Deginum lauk svo með ræðum frá Herði Árnasyni, forstjóra Landsvirkjunar og Franek Rozwadowski, sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi.

Á málþinginu var farið yfir þær endurbætur sem hafa átt sér stað og eru í gangi í efnahagslífinu á Íslandi, jákvæð áhrif þeirra, sem og velgengni þeirri sem Ísland hefur átt að fagna í kjölfar þess að hafa fylgt eftir fyrirskipunum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Áheyrendur fengu einnig að heyra umfjöllun um hvernig erlendir fjárfestar hafa í auknum  mæli litið til íslands í jákvæðu ljósi um leið og áhrif kreppunnar fara minnkandi, og hvernig frumkvöðlastarfsemi hefur aukist í kjölfar kreppunnar. Að lokum fengu áheyrendur að heyra hvernig Íslandi gæti mögulega í framtíðinni séð bæði Bretlandi og öðrum Evrópuþjóðum fyrir raforku.

Hér að neðan má sjá pdf. útgáfur af glærukynningunum.

Arni_Pall_Arnason.pdf
Mar_Gudmundsson.pdf
Cyrus_Ardalan.pdf
Helga_Valfells.pdf
Hordur_Arnason.pdf
Franek_Rozwadowski.pdf

Fyrir allar nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Guðmund J. Oddsson, annaðhvort með tölvupósti á gudmundur.oddsson@logoslegalservices.com eða í síma +44 207 920 3020.

Ísland- Nýtt tækifæri - málþing 29. september 2011 í London

27.9.2011

Bresk-íslenska verslunarráðið (þar sem Guðmundur J. Oddsson, eigandi og forstöðumaður London skrifstofu LOGOS, er í stjórn) mun halda málþing um íslenska hagkerfið, pólitíska landslagið o.fl., fimmtudaginn 29. september 2011 í London.

Meðal ræðumanna eru:

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra
Már Guðmundsson, bankastjóri Seðlabanka Íslands
Cyrus Ardalan, varaformaður, Barclays PLC
Franek Rozwadoswski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Fyrir nánari upplýsingar um málþingið farið á http://www.bicc.is/news/nr/826/.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að sækja málþingið, vinsamlega sendið tölvupóst til kristin@chambers.is eða hafið samband við gudmundur.oddsson@logoslegalservices.com, sími: 00 44 207 920 3020.

Chambers Europe 2011 metur LOGOS

15.9.2011

Chambers Europe hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi. Einnig voru nokkrir lögmenn hjá LOGOS taldir skara framúr á sínum sviðum.

Matið fer m.a. fram með viðtölum við viðskiptavini lögfræðinga. Það sem hefur áhrif á niðurstöðu matsins eru þættir eins og fagmennska, tæknileg geta, þjónusta við viðskiptavini, áreiðanleiki og viðbragðsflýtir, auk þeirra þátta sem viðskiptavinir telja skipta mestu máli við góða lögfræðiþjónustu.

Sjá nánar hér.

VR fyrirmyndarfyrirtæki

27.6.2011

VR hefur frá árinu 2005 heiðrað sérstaklega fyrirtækin í tuttugu efstu sætunum, í "Fyrirtæki ársins", og veitt þeim viðurkenningar fyrir frábæran árangur.

LOGOS hefur frá árinu 2008 verið veitt viðurkenningin "Fyrirmyndarfyrirtæki"


LOGOS styrkurinn

23.6.2011

LOGOS styrkurinn fyrir árið 2011 var að þessu sinni veittur Höllu Björgvinsdóttur, nemanda í HR og Friðriki Árna Friðrikssyni Hirst, nemanda í HÍ. Styrkurinn er veittur fyrir framúrskarandi árangur í laganámi.

Við óskum Höllu og Friðriki innilega til hamingju með glæsilegan árangur.

Móttaka í London

7.4.2011

Þann 24. maí nk., mun norski sendiherrann í Bretlandi bjóða til móttöku í samstarfi við norrænar lögmannsstofur í London, LOGOS, Kromann Reumert og Thommessen

Sjá nánar hér.

Chambers Global metur LOGOS

28.3.2011
Chambers Global hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi árið 2011.

Chambers Global meta framúrskarandi lögfræðinga og lögmannsstofur í yfir 180 lögsögum og beina sjónum einkum og sér í lagi á þá lögmenn er starfa á alþjóðavettvangi.

Sjá nánar hér.

Óttar Pálsson hrl. gerist meðeigandi að LOGOS lögmannsþjónustu

21.3.2011
Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður, hefur gengið til liðs við LOGOS lögmannsþjónustu og verður einn eigenda félagsins. Óttar mun veita viðskiptavinum ráðgjöf um löggjöf á fjármálamarkaði, fjárfestingar og fjármögnun fyrirtækja auk þess að sinna málflutningi.

Óttar gegndi starfi forstjóra Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (nú ALMC hf.) frá mars 2009 til loka síðasta árs og leiddi á þeim tíma fjárhagslega og rekstrarlega endurskipulagningu félagsins. Óttar tók sæti í stjórn ALMC hf. í september 2010 og mun sitja áfram í stjórninni samhliða lögmennsku.

Óttar var framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Straums á tímabilinu 2006 til 2009. Þar áður starfaði hann hjá A&P lögmönnum og LOGOS lögmannsþjónustu, sem meðeigandi á árunum 2002 til 2006.

Óttar lauk embættisprófi í lögfræði frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 1997, stundaði nám við Kaþólska háskólann í Löven, Belgíu, árið 1996 og lauk meistaragráðu (LL.M.) í félaga-, banka- og verðbréfarétti árið 2001 frá University College London.  Óttar varð hæstaréttarlögmaður árið 2006.

Chambers and Partners, The Legal 500 og IFLR1000 meta LOGOS

7.4.2010

Fyrirtækin Chambers and Partners , The Legal 500 og IFLR1000 hafa metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi.  Einnig voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS taldir skara framúr á sínum sviðum.  Í þessu er fólgin mikil viðurkenning fyrir LOGOS þar sem Chambers and Partners, The Legal 500 og IFLR1000 eru alþjóðleg fyrirtæki sem sérhæfa sig í mati á gæðum lögfræðiþjónustu. 

Matið fer m.a. fram með viðtölum við viðskiptavini lögfræðinga.  Það sem hefur áhrif á niðurstöðu matsins eru þættir eins og fagmennska, tæknileg geta, þjónusta við viðskiptavini, áreiðanleiki og viðbragðsflýtir, auk þeirra þátta sem viðskiptavinir telja skipta mestu máli við góða lögfræðiþjónustu.

Sjá nánar Chambers and partners hér, The Legal 500 hér og IFLR1000 hér.
        

Nýr eigandi í London

5.3.2010
Þann 1. mars 2010 bættist Hafliði Kristján Lárusson í hóp eigenda á skrifstofu LOGOS í London.

Hafliði hefur unnið á skrifstofu LOGOS í London síðan árið 2007 og tekið virkan þátt í að byggja þar upp öflugt starf.

Hafliði er útskrifaður með D.S.U. frá Université Panthéon-Assas 1996, D.E.S.S. frá University of Toulouse 1997, M.A. frá University of Western Ontario 1999, og LL.M. gráðu frá Nottingham Trent University 2007. Hann er einnig með diploma frá The College of Law, England 2001 og Nottingham Law School 2006. Hafliði starfaði hjá bandarísku lögmannsstofunni White & Case í London frá 2002 þar til hann gekk til liðs við LOGOS árið 2007. Hafliði hefur verið stundakennari við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2007. Hann er fulltrúi Íslands í gerðardómi Alþjóða viðskiptaráðsins í París síðan í júlí 2009.

LOGOS aðstoðar við 1,6 miljarða evra fjárhagslega endurskipulagningu Hf. Eimskipafélags Íslands

2.9.2009
Á kröfuhafafundi í Hf. Eimskipafélagi Íslands þann 14. ágúst var nauðasamningsfrumvarp félagsins samþykkt samhljóða af öllum kröfuhöfum félagsins. Í dag þann 28. ágúst var háð þinghald í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem nauðasamningurinn var samþykktur.Frá því í október 2008 hefur hópur lögmanna LOGOS undir forystu Ólafs Arnbjarnar Sigurðssonar, Ólafs Eiríkssonar og Péturs Guðmundarsonar verið Eimskipafélaginu innan handar við undirbúning fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins.

Lesa alla greinina.

Hádegisverðarfundur 7. september 2009

27.8.2009
Some Thoughts on the Causes of the 2008 Financial Crisis
(From the Perspective of a UK Investment Banker Who Saw it Unfold)

Fundurinn hefst með hádegisverði á Nordica Hóteli, annari hæð, kl. 12:00 mánudaginn 7. september en áætlað er að honum ljúki kl. 13:30

Jas Bains will give a short presentation of the underlying causes of the 2008 Financial Crisis seen from his view as a banker at Barclays Capital in London. Barclays Capital was and remains a global market leader in structured products.

Jas Bains is a Solicitor in England and Wales at LOGOS Legal Services in London. Jas is a Cambridge University graduate and trained and qualified as a solicitor at Freshfields Bruckhaus Deringer in London. After 4 years at Freshfields, Jas joined ING Bank, London and later Barclays Capital, London where he worked in the Structured Capital Markets team. Jas joined LOGOS in London early 2009 and leads the firm’s UK qualified team on Banking and Finance Law as well as Restructuring.

Móttaka í London

24.4.2009
Þann 14. maí nk., mun íslenski sendiherrann í Bretlandi bjóða til móttöku í samstarfi við norrænar lögmannsstofur í London, LOGOS, Vinge, Kromann Reumert og Thommessen. Sjá nánar hér.

Fréttabréf LOGOS varðandi íslensku neyðarlögin

3.2.2009
Fréttabréf LOGOS, 3. febrúar 2009, varðandi íslensku neyðarlögin.

Smellið hér til að lesa.

LOGOS opnar skrifstofu í Kaupmannahöfn

5.1.2008
Nú um áramótin bættist LOGOS liðsauki frá Danmörku, þegar að Peter Mollerup og Carsten Møllekilde gengu í sameignarfélagið LOGOS. Þeir hafa stundað lögmannsstörf í Danmörku um árabil og voru meðeigendur að Johan Schluter lögmannsstofu. Með þeim munu starfa á skrifstofunni í Kaupmannahöfn 3 lögmenn og 2 aðstoðarmenn til að byrja með. LOGOS í Kaupmannahöfn mun aðallega sinna fyrirtækjaþjónustu, með áherslu á fjárfestingarverkefni og fjármálagerninga.

Með stofnsetningu á útibúi í Danmörku brýtur LOGOS blað, því að Carsten og Peter eru fyrstu erlendu lögmennirnir sem eru meðeigendur að lögmannsstofu á Íslandi, auk þess sem LOGOS í Danmörku verður fyrsta danska lögmannsstofan sem er í eigu erlendrar lögmannsstofu.

Opnun í Kaupmannahöfn er þáttur í áframhaldandi þróun LOGOS sem lögfræðifyrirtækis, en markmiðið er að sinna sem best þörfum viðskiptavina stofunnar. Teljum við að starfsemi í Reykjavík, í Kaupmannahöfn og í London sé til þess fallin að mæta þörfum viðskiptavinanna, sem í vaxandi mæli hafa fært hluta af starfsemi sinni til Englands og Norðurlanda.

Starfsemin í Danmörku verður kynnt nánar á næstu vikum, m.a. með heimsóknum til viðskiptavina LOGOS.

Móttaka í London

1.5.2007
LOGOS stendur fyrir móttöku í London þann 24. maí 2007 í samstarfi við skandinavísku lögmannsstofurnar Vinge, Kromann Reumert og Thommessen. Móttakan verður haldin í danska sendiráðinu á Sloane Street (sama hús og íslenska sendiráðið).

Þeim sem hafa áhuga á að mæta er bent á að senda tölvupóst til Katrínar Gunnarsdóttur, katrin@logos.is, sjá nánar boðskort

LOGOS kostar lektorsstöðu í tilefni 100 ára afmælis

15.2.2007
LOGOS lögmannsþjónusta kostar stöðu lektors við lagadeild Háskóla Íslands næstu þrjú árin. Kristín Ingólfsdóttir rektor og Gunnar Sturluson, framkvæmdastjóri LOGOS, undirrituðu samning þessa efnis í dag. Kostnaður LOGOS vegna þessa nemur um 15 milljónum króna en markmiðið er að efla kennslu og rannsóknir við lagadeild Háskóla Íslands á sviði stjórn­sýslu­réttar með áherslu á reglur um eftirlit stjórn­valda með starfsemi á fjármála­markaði.

Breytingar á eigendahópi LOGOS

5.1.2007
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson hdl. gerðist meðeigandi að LOGOS sf.  þann 1. janúar 2007. Ólafur Arinbjörn hefur starfað hjá LOGOS frá árinu 2003.
                                                          

Jakob R. Möller hrl. gekk úr sameignarfélaginu LOGOS sf. á sama tíma.  Jakob mun starfa áfram að tilteknum verkefnum, sem hann hefur þegar tekið að sér, þar á meðal dómsmálum sem honum hafa verið falin.  Jakob mun jafnframt verða LOGOS til ráðgjafar í málefnum, sem varða LOGOS og viðskiptamenn félagsins.  Málflutningsréttindi Jakobs eru óhögguð og lögmannsverkefnum sínum mun hann sinna undir merkjum LOGOS.  Sjálfur orðar Jakob það svo, að hann "sé byrjaður að hætta störfum vegna aldurs"

Skattaráðstefna í London

15.10.2006
Þann 9. nóvember 2006 munu LOGOS, Vinge, Kromann Reumert og Thommessen halda ráðstefnu sem ber yfirskriftina: AQUISITIONS IN THE NORDIC REGION - TAX STRUCTURING.

Megin áhersla verður lögð annars vegar á skattaleg álitaefni við yfirtöku fyrirtækja á norðurlöndum og hins vegar á skattlagningu hlutabréfakaupa stjórnenda fyrirtækja á norðurlöndum.

Allir velkomnir.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér

Skráning

Ráðstefna í London

10.5.2006
Þann 4. maí 2006 var haldin ráðstefna í London sem bar yfirskriftina "Icelandic Investments in the UK and Scandinavia".  Sjá nánar erindi sem flutt voru á ráðstefnunni ásamt myndum.

"The International Expansion of Icelandic Companies" 
Ármann Þorvaldsson, Singer & Friedlander Group plc.

"Investments in the UK"
Lýður Guðmundsson, Bakkavör Group

Myndir frá ráðstefnunni