Frá framkvæmdastjóra
Til er kínversk bölbæn sem hljóðar svo; "Megir þú lifa áhugaverða tíma". Það er óhætt að segja að Íslendingar finni það nú á eigin skinni hvernig lífið er á tímum róttækra breytinga. Lífið er líklega auðveldast þegar allt er kyrrt.
En umbrotatímar hafa einnig tækifæri í för með sér - ekki síst fyrir öfluga lögmannsstofu á borð við LOGOS. Nú reynir á lagaramma viðskiptalífsins á áður óþekktan hátt, ýmis lög og reglur hafa verið stokkuð upp og fleiri breytingar eru í farvatninu - og jafnvel sjálf stjórnarskráin er komin undir smásjána. Við slíkar aðstæður verða kostir fagmannlegrar lögmannsþjónustu augljósari en ella, hvort sem þarf að leysa úr ágreiningi, gæta hagsmuna eða leita nýrra tækifæra.
Þessar breyttu aðstæður hafa líka leitt helstu kosti LOGOS enn betur í ljós. Nú njótum við þess að hafa innleitt nýja stjórnarhætti í rekstrinum með áherslu á gæði, skipulag, verkefnisstjórnun og teymisvinnu - þar sem sveigjanleikinn í öflugum hópi lögmanna nýtist svo vel. Þessu hafa erlend matsfyrirtæki á sviði lögmannsþjónustu tekið eftir, en í því felst gríðarleg viðurkenning fyrir LOGOS, bæði í starfsstöðvum innanlands og erlendis.
Íslendingar eru aðeins rúmlega 300.000 og því augljóst að tækifæri til vaxtar eru takmörkuð hér heima. Þótt hugtakið útrás hafi fengið á sig vont orð hefur sókn Íslendinga erlendis í mörgum tilfellum heppnast prýðilega á undanförnum árum. Reynslan hefur þó kennt okkur að sígandi lukka er best og nauðsynlegt er að vanda til verka. Þannig hefur starfsemi LOGOS í London dafnað vel.
Aukin áhersla hefur færst á vinnu með norrænum viðskiptavinum. Það er þáttur í aðlögun LOGOS að breyttum aðstæðum í íslensku viðskiptalífi, þótt vinna með fjölbreyttum hópi fyrirtækja sem eiga hagsmuna að gæta í íslensku viðskiptalífi vegi áfram þyngst í okkar starfi.
Ég er því hvergi banginn fyrir hönd LOGOS og ég fullyrði að við erum mjög vel í stakk búin til að blómstra á þeim áhugaverðu tímum sem framundan eru í viðskiptalífinu.