Námsvist hjá LOGOS lögmannsþjónustu

LOGOS býður laganemum á seinni hluta laganáms að starfa hjá fyrirtækinu.   Laganemar geta þannig kynnst starfsemi LOGOS og fengið reynslu af vinnu við fjölbreytt lögfræðileg verkefni. Ef þú hefur áhuga á að starfa á metnaðarfullri lögfræðistofu, sendu þá umsókn á netfangið sigridur@logos.is og við munum hafa samband við þig.

Gerður hefur verið samningur við lagadeild Háskólans í Reykjavík um að taka á móti allt að 6 meistaranemum í starfsnám yfir vetrartímann.