Öflugt samstarf

RúlluborðNútíma viðskiptaumhverfi gerir kröfur um sveigjanleika og getu til að kalla rétta menn til samstarfs þegar þörf krefur. LOGOS á sér öfluga samstarfsaðila bæði hér heima og erlendis. Markmiðið er að greiða viðskiptavinum okkar leiðina að góðum árangri hvar og hvenær sem er.

Róbert R. Spanó

LOGOS hefur gert samning við Prófessos Róbert R. Spanó, deildarforseta lagadeildar Háskóla Íslands, um ráðgjöf við LOGOS. Hann mun sinna verkefnum á sviði stjórnsýsluréttar, réttarfars, refsiréttar og stjórnskipunarréttar.´

Róbert útskrifaðist með meistaraprófa á sviði ríkisréttar frá lagadeild Oxfordháskóla árið 2000. Hlaut hann ágætiseinkunn og vann til Clifford-Chance verðlauna fyrir heildarnámsárangur í meistaranámi. Róbert var ráðinn lektor við lagadeild Háskóla Íslands árið 2002 og ráðinn dósent árið 2004. Róbert var settur umboðsmaður Alþingis á árunum 2009-2010. Róbert varð prófessor þann 1. nóvember 2006 og er starfandi deildarforseti við lagadeild.

Helstu rannsóknarsvið hans hafa verið lögskýringarfræði, stjórnarskrá Íslands og refsiábyrgð, stjórnsýsluréttur og réttarfarsreglur í málum þar sem ríki og sveitarfélög eru aðilar.

Hugverkaréttindi

LOGOS er meðeigandi að ArnasonFaktor, sem er sérhæft ráðgjafarfyrirtæki um vernd og hagnýtingu hugverkaréttinda. Fyrirtækið hefur umsjón með einkaleyfa- og vörumerkjamálum hjá mörgum íslenskum hátæknifyrirtækjum, auk þess að aðstoða erlenda viðskiptavini víðs vegar um heiminn við að tryggja eignarétt sinn á Íslandi.