Árið 2006 voru í fyrsta sinn veittar viðurkenningar fyrir námsárangur á BA prófi og meistaraprófi við lagadeild
Háskóla Íslands,
Háskólans á Bifröst og
Háskólans í Reykjavík. LOGOS ákvað að veita styrk þeim nemendum sem útskrifast með hæstu meðaleinkunn úr meistaranámi frá lagadeildum háskólanna í október, febrúar og júní.
Styrkurinn var veittur í fyrsta sinn í júní 2006 og var það Berglind Bára Sigurjónssdóttir sem hlaut hann.
Þeir sem LOGOS hefur veitt styrk eru eftirfarandi:
Halla Björgvinsdóttir, Háskólanum í Reykjavík, júní 2011
Friðrik Árni Friðriksson Hirst, Háskóla Íslands, júní 2011
Páll Jónsson, Háskólanum í Reykjavík, janúar 2011
Sigríður Árnadóttir, Háskólanum í Reykjavík, júní 2010
Svanhvít Yrsa Árnadóttir, Háskóla Íslands, júní 2010
Þórunn Helga Þórðardóttir, Háskólanum í Reykjavik, janúar 2010
Hafsteinn Dan Kristjánsson, Háskóla Íslands, júní 2009
Margrét María Grétarsdóttir, Háskóla Íslands, júní 2007
Sigurður Árnason, Viðskiptaháskólanum á Bifröst, febrúar2007
Berglind Bára Sigurjónsdóttir, Háskóla Íslands júní 2006
Lagadeild Háskóla Íslands
LOGOS lögmannsþjónusta kostaði stöðu lektors við
lagadeild Háskóla Íslands til þriggja ára, frá árinu 2007.
Eiríkur Jónsson hdl. gegndi stöðunni. Kristín Ingólfsdóttir rektor, Dr. Páll Hreinsson forseti lagadeildar og
Gunnar Sturluson hrl., framkvæmdastjóri LOGOS undirrituðu samning þessa efnis þann 16. febrúar 2007. Kostnaður LOGOS vegna þessa nemur um 15 miljónum króna, en markmiðið var að efla kennslu og rannsóknir við
lagadeild Háskóla Íslands á sviði stjórnsýsluréttar með áherslu á reglur um eftirlit stjórnvalda með starfsemi á fjármálamarkaði. Eiríkur Jónsson útskrifaðist frá
lagadeild Háskóla Íslands árið 2002 og starfaði sem lögmaður hjá
Landslögum. Hann lauk LL.M. prófi frá
Harvard Law School árið 2006. Eiríkur var ritari Kærunefndar útboðsmála 2002-2005 og formarður
Stúdentaráðs Háskóla Íslands 2000-2001.
Árið 2007 fagnaði LOGOS 100 ára afmæli og var samningurinn við Háskóla Íslands þáttur í því að minnast þessara tímamóta. Með nýrri lektorsstöðu vildi LOGOS hvetja
lagadeild Háskóla Íslands til dáða á þeim sviðum sem viðskiptavinir LOGOS og atvinnulífið nyti góðs af. "Við sérhæfum okkur í þjónustu við viðskiptalífið og þar er þróunin gríðarlega ör. Þess vegna er mikilvægt að réttarreglur sem varða stjórnsýslueftirlit séu rannsakaðar frá sem flestum hliðum og þá ekki síst með tilliti til reglna sem varða samkeppni, kauphallar- og verðbréfaviðskipti og skattamál. Rannsóknir á sameiginlegum þáttum þessara eftirlitsreglna ríkisins eru mjög áhugaverðar", sagði Gunnar.
Í samningi LOGOS og Háskólans var gert ráð fyrir því að niðurstöður yrðu birtar auk þess sem haldnir yrðu fyrirlestrar. Birt efni og fræðafundir munu án nokkurs vafa einnig nýtast við kennslu á þessum sviðum og styrkja hana mjög.