Umsagnir

Chambers Global metur LOGOS í fremstu röð

Enn á ný er LOGOS í fremstu röð þegar kemur að mati á lögfræðiráðgjöfum á Íslandi. Í dag gáfu Chambers Global út nýtt mat og er LOGOS metið í fremstu röð í öllum málaflokkum og eru margir af lögmönnum LOGOS tilgreindir sem leiðandi lögmenn á sínu sviði.

Chambers Global meta framúrskarandi lögfræðinga og lögmannsstofur í yfir 180 lögsögum og beina sjónum einkum og sér í lagi á þá lögmenn er starfa á alþjóðavettvangi.

Smellið hér til að sjá nánar.

The Global Awards Guide

The Global Awards Guide leggur mat á velgengni fyrirtækja og einstaklinga sem þykja hafa verið leiðandi í alhliða lögfræðiþjónustu síðustu 12 mánuði. Eftir að hafa grandskoðað og rannsakað fjölda viðskipta, sem og frammistöðu og tiltæk gögn vandlega, þá hljóta þau fyrirtæki sem sýnt hafa stöðuga þróun og framúrskarandi vinnubrögð umrædd verðlaun. 

The Global Awards Guide hefur á þessum grunni valið LOGOS lögmannsþjónustu sem lögfræðistofu ársins 2012.

Global Awards Guide 2012

IFLR1000 metur LOGOS í fremstu röð

IFLR1000 hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi. Voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS einnig taldir skara framúr á sínum sviðum.

Viðurkenningin endurspeglar álit viðskiptavina og keppinauta LOGOS, en IFLR1000 byggir mat sitt á rannsókn sem er unnin út frá víðtæku viðtalsferli.

Sjá nánar hér

 

IFLR1000

VR fyrirmyndarfyrirtæki

VR hefur frá árinu 2005 heiðrað sérstaklega fyrirtækin í tuttugu efstu sætunum, í "Fyrirtæki ársins", og veitt þeim viðurkenningar fyrir frábæran árangur.

LOGOS hefur frá árinu 2008 verið veitt viðurkenningin "Fyrirmyndarfyrirtæki"


Chambers Global metur LOGOS

Chambers Global hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi árið 2011.

Chambers Global meta framúrskarandi lögfræðinga og lögmannsstofur í yfir 180 lögsögum og beina sjónum einkum og sér í lagi á þá lögmenn er starfa á alþjóðavettvangi.

Sjá nánar hér.

Chambers and Partners, The Legal 500 og IFLR1000 meta LOGOS

Fyrirtækin Chambers and Partners , The Legal 500 og IFLR1000 hafa metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi.  Einnig voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS taldir skara framúr á sínum sviðum.  Í þessu er fólgin mikil viðurkenning fyrir LOGOS þar sem Chambers and Partners, The Legal 500 og IFLR1000 eru alþjóðleg fyrirtæki sem sérhæfa sig í mati á gæðum lögfræðiþjónustu. 

Matið fer m.a. fram með viðtölum við viðskiptavini lögfræðinga.  Það sem hefur áhrif á niðurstöðu matsins eru þættir eins og fagmennska, tæknileg geta, þjónusta við viðskiptavini, áreiðanleiki og viðbragðsflýtir, auk þeirra þátta sem viðskiptavinir telja skipta mestu máli við góða lögfræðiþjónustu.

Sjá nánar Chambers and partners hér, The Legal 500 hér og IFLR1000 hér.