ESB/EES

Starfsmenn LOGOS búa yfir víðtækri þekkingu og reynslu á sviði Evrópu- og EES-réttar. Meðal starfsmanna LOGOS eru lögfræðingar sem sótt hafa sér framhaldsmenntun í Evrópurétti víðs vegar um Evrópu og lögfræðingar sem starfað hafa fyrir ýmsar stofnanir Evrópusambandsins og EFTA, þar á meðal eru lögfræðingar sem störfuðu um árabil í ýmsum deildum Eftirlitsstofnunar EFTA.

Ört vaxandi hluti íslenskrar löggjafar byggir á Evrópulöggjöf auk þess sem dómafordæmi Evrópudómstólsins og EFTA dómstólsins hafa sífellt meira vægi hér á landi. Þannig kemur Evrópuréttur við sögu í fjölda mála þar sem reynir á túlkun og skýringu íslenskra laga. Það er LOGOS því afar mikilvægt að hafa færa sérfræðinga á sviði Evrópuréttar innan sinna raða. LOGOS hefur bæði veitt innlendum og erlendum einkaaðilum og opinberum aðilum aðstoð við málarekstur hjá Eftirlitsstofnun EFTA, framkvæmdastjórn ESB, EFTA dómstólnum og Evrópudómstólnum.

Einn helsti sérfræðingur LOGOS í Evrópurétti, Helga Melkorka Óttarsdóttir, hefur annast kennslu í faginu við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík um árabil.

Helstu eigendur:
Árni Vilhjálmsson
Helga Melkorka Óttarsdóttir