Fjármögnun fyrirtækja og fjármagnsmarkaðir

LOGOS hefur mikla reynslu af vinnu við fjármögnun fyrirtækja. Lögmenn okkar hafa bæði liðsinnt fjölda félaga í leit að auknu fjármagni og einnig sjálfum fjárfestunum. Þar á meðal eru fjárfestingasjóðir, lífeyrissjóðir og fleiri, auk erlendra aðila. Við veitum ráðgjöf um val milli fjármögnunarkosta auk þess að sinna samninga- og skjalagerð sem oft geta verið býsna flókin.
Við leggjum áherslu á að koma að málum strax á byrjunarstigi, enda sýnir reynslan að slíkt verklag skilar hagstæðustu niðurstöðunni að lokum.
LOGOS hefur einnig verið leiðandi á þeim sviðum sem varða verðbréf og viðskipti með þau en á stofunni starfa nokkrir af helstu sérfræðingum landsins á sviði verðbréfamarkaðsréttar. Helstu verkefni á þessum sviðum varða kaup og sölu verðbréfa í ýmsum útfærslum. Einnig má nefna mikilvæg atriði á borð við þau réttindi og skyldur sem fylgja skráningu félaga í kauphöll; tilkynningar um breytingar á eignarhaldi verulegs eignarhluta, innherjaviðskipti og fleira.
Helstu eigendur:
Ann Grewar
Carsten Møllekilde
Guðmundur J. Oddsson
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson
Óttar Pálsson hrl.
Þórólfur Jónsson