Hugverkaréttur og upplýsingatækni
LOGOS státar af framúrskarandi sérfræðiþekkingu og reynslu á sviði hugverkaréttar og upplýsingatækni. Sérfræðingar okkar sinna til að mynda hvers konar samningagerð og ráðgjöf á þessum réttarsviðum og veita jafnframt aðstoð í ágreiningsmálum.
Meðal verkefna á þessu sviði má nefna samninga um gerð og notkun hugbúnaðar, afnot einkaleyfa, vörumerkja og hönnunar, um útgáfu á tónlist og notkun hennar í auglýsingum og kvikmyndum, samninga við umboðsmenn tónlistarmanna, skilmála vegna dreifingar og sölu tónlistar á netinu, samninga kvikmyndaframleiðinda við handritshöfunda, leikara o.fl., framleiðslusamninga vegna sjónvarpsþátta og ráðgjöf um rafræna markaðssetningu auk aðstoðar í ágreiningsmálum vegna óheimillar notkunar hugverka, þar með talið vörumerkja og einkaleyfa, þ.m.t. rekstur dómsmála á þessum sviðum.
LOGOS hefur einnig áralanga reynslu í ráðgjöf vegna mála sem tengjast persónuvernd, svo sem um vinnslu persónuupplýsinga.
LOGOS er meðeigandi að ráðgjafafyrirtækinu Arnason Faktor sem sérhæfir sig í verndun og skráningu hugverkaréttinda. Þessi góðu tengsl tryggja viðskiptavinum LOGOS greiðan aðgang að sérfræðilegri ráðgjöf vegna umsókna um verndun hugverkaréttinda á borð við vörumerki, einkaleyfi og hönnun.
Helstu eigendur:
Árni Vilhjálmsson
Hjördís Halldórsdóttir
Peter Mollerup
Ragnar Tómas Árnason