Verktakaréttur, fjármögnun og opinber innkaup
LOGOS hefur um árabil verið leiðandi á íslenskum markaði í gerð verksamninga og í ráðgjöf til verktaka og verkkaupa vegna verksamninga og í ágreiningsmálum tengdum verksamningum.
Þá höfum við víðtæka reynslu í ráðgjöf um val á útboðsaðferðum og öðrum leiðum til að koma á fót verk-, þjónustu- eða vörukaupasamningum, við val á bjóðendum og kærendum, gerð útboðsskilmála og í gerð kæra til kærunefndar útboðsmála og andmæla við slíkum kærum.
Dæmi um verkefni sem unnið hefur verið að:
- Stækkun verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar: Umsjón með allri samningagerð eiganda Smáralindar við hönnuði og verktaka vegna stækkunar verslunarmiðstöðvarinnar.
- Tónlistarhús við Austurhöfn: Ráðgjöf við aðalverktaka í samningagerð við eiganda, hönnuði og undirverktaka.
- Háskólinn í Reykjavík: Ráðgjöf við verkkaupa vegna nýbyggingar háskólans við Nauthólsvík.
- Framkvæmdasýsla ríkisins: Ráðgjöf við Framkvæmdasýsluna og fjölmargar opinberar stofnanir tengdar henni vegna ýmissa opinberra framkvæmda svo sem Háskólatorgs, uppbyggingar á Alþingisreit, undirbúnings nýs háskólasjúkrahúss o.fl., svo og við úrlausn ágreiningsmála.
- Landsvirkjun: Endurnýjun útboðsskilmála vegna verklegra framkvæmda.
- Ráðgjöf við gerð verksamnings um byggingu gagnavers á Miðnesheiði fyrir Verne Holdings ehf.
- Ráðgjöf við fjölmarga verktaka og verkkaupa við samningsgerð og úrlausn ágreiningsmála.
- Opinber innkaup: Ráðgjöf við dómsmálaráðuneyti og Landhelgisgæslu Íslands við leigu á tveimur björgunarþyrlum. Rekstur fjölmargra mála fyrir Kærunefnd útboðsmála og dómstólum.
- Kennsla í verktaka- og útboðsrétti við Háskóla Íslands frá 1990 og við Háskólann í Reykjavík frá 2006.
Helstu eigendur:
Ann Grewar
Erlendur Gíslason
Guðmundur J. Oddsson
Hjördís Halldórsdóttir
Othar Örn Petersen