
Morgunfundur (fjarfundur) IcelandSIF um flokkunarreglugerð Evrópusambandsins (e. EU Taxonomy Regulation)
Miðvikudagurinn 2. desember
Tími: kl 9:00 – 10:00
Fundurinn verður haldinn á Teams. Teams hlekkur verður sendur í tölvupósti á skráða aðila, daginn fyrir fundinn.
IcelandSIF stendur fyrir morgunfundi um flokkunarreglugerð Evrópusambandsins í samstarfi við Fjármálaráðuneytið, LOGOS og KPMG.
Guðmundur Kári Kárason, lögfræðingur hjá skrifstofu fjármálamarkaðar í Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, mun kynna stöðu innleiðingar flokkunarreglugerðar Evrópusambandsins og tengds regluverks á Íslandi.
Helga Melkorka Óttarsdóttir, lögmaður og eigandi hjá LOGOS, og Arnar Sveinn Harðarson, lögfræðingur á LOGOS, munu fjalla um grundvallaratriði flokkunarkerfisins, með áherslu á skilgreiningu á umhverfissjálfbærri (grænni) atvinnustarfsemi og þær kröfur sem gerðar eru til upplýsingagjafar.
Þá mun Benoit Cheron sérfræðingur á ráðgjafasviði KPMG ásamt erlendum sérfræðingum KPMG veita innsýn í raunhæf dæmi um hvernig flokkunarreglugerð Evrópusambandsins hefur verið tekin inn í starfsemi í mismunandi löndum.
Skráning á viðburðinn er á vefsíðu IcelandSIF.