Hagstæðar niðurstöður í stórum samkeppnismálum

Samkeppnisréttarteymi LOGOS hefur á rétt rúmri viku fengið ánægjulegar niðurstöður fyrir viðskiptavini sína í stórum málum.

Fyrir réttri viku heimilaði Samkeppniseftirlitið samruna Ása hf. við annars vegar Öryggismiðstöð Íslands hf. og hins vegar Opin kerfi hf. með skilyrði. Var LOGOS Ásum til ráðgjafar við málsmeðferðina gagnvart stofnuninni.

Strax í kjölfarið heimilaði Samkeppniseftirlitið samruna Bláa Lónsins hf. og Arctic Adventures hf. án skilyrða. Var LOGOS samrunaaðilum til ráðgjafar við málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins.

Með ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA í gær, 9. nóvember, tilkynnti stofnunin að rannsókn á hendur tveimur lyfjakeðjum hafi verið felld niður, en rannsóknin byggði á fyrstu húsleit stofnunarinnar hér á landi, sem framkvæmd var á árinu 2024. Var LOGOS annarri keðjunni til ráðgjafar við málsmeðferðina og gætti hagsmuna hennar við m.a. leitina og málflutning fyrir EFTA dómstólnum á rannsóknarstigi.

Loks staðfesti svo Landsréttur sama dag úrskurð héraðsdóms um frávísun skaðabótamáls Alcoa Fjarðaáls gegn Eimskipafélagi Íslands hf. Annaðist LOGOS málsvörnina fyrir hönd Eimskips.

Öll verkefnin voru leidd af Halldóri Brynjari Halldórssyni, lögmanni og eigenda, sem naut í öllum málanna aðstoðar Tómasar Arons Viggóssonar, lögmanns og verkefnastjóra.