LOGOS er framúrskarandi og til fyrirmyndar í rekstri

LOGOS hlaut í dag útnefninguna Framúrskarandi fyrirtæki sjöunda árið í röð.

Hvítur steyptur stigi með grænum bakgrunni

Við erum stolt af því að tilheyra hópi þeirra íslensku fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum árið 2022. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra.