LOGOS, stærsta lögmannsstofa landsins, og Syndis, stærsta fyrirtæki landsins á sviði netöryggis, hafa gert með sér samstarfssamning sem miðar að því að veita viðskiptavinum heildstæða og samþætta ráðgjöf á sviði lögfræði og netöryggis.
Samstarfið felur í sér nánara samráð og sameiginlega vinnu í verkefnum, m.a. í tengslum við netárásir og undirbúning fyrirtækja fyrir nýja löggjöf eins og DORA sem leggur auknar kröfur á íslensk fyrirtæki um netöryggi, viðbúnað og stjórnarhætti.
LOGOS veitir heildstæða lögfræðiráðgjöf til innlendra og erlendra viðskiptavina og býr yfir sérþekkingu á sviðum sem tengjast upplýsingatækni, persónuvernd, samkeppnisrétti, fjármálamarkaði og regluverki tengdu netöryggi.
Syndis er stærsta netöryggisfyrirtæki landsins og sérhæfir sig í greiningu veikleika í upplýsingakerfum, áreiðanleikakönnunum, viðbragðsáætlunum og netöryggisforvörnum fyrir fyrirtæki hérlendis og erlendis.
Markmiðið með samstarfinu er að sameina sérþekkingu beggja fyrirtækja til þess að efla þjónustu við viðskiptavini á tímum þar sem stafræn áhætta og regluverk fara sífellt vaxandi.
„Við hjá Syndis fögnum samstarfinu við LOGOS. Með þessu skrefi sameinum við sérhæfða lögfræðiráðgjöf og djúpa þekkingu á netöryggi, sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar enn heildstæðari og skilvirkari þjónustu á tímum vaxandi stafrænna ógna og flóknara lagaumhverfis,“ segir Anton Egilsson forstjóri Syndis.
„Við erum mjög ánægð að formfesta samstarf við Syndis. Netöryggi snýst ekki aðeins um tæknilegar varnir heldur einnig um skýra ábyrgð, samninga og réttarstöðu. Þetta er eitt það mest vaxandi réttarsvið hjá norrænum lögfræðistofum um þessar mundir, knúið áfram af stafrænni umbreytingu og auknu regluverki. Með samstarfinu getum við veitt samþættar lausnir sem svara krefjandi þörfum nútímaviðskipta ekki síst í ljósi vaxandi lagaumhverfis á borð við DORA” segir Benedikt Egill Árnason, framkvæmdastjóri LOGOS.
Á myndinni eru: Benedikt Egill Árnason, framkvæmdastjóri LOGOS, Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður hjá LOGOS, Guðríður Steingrímsdóttir, öryggisstjóri Syndis og Anton Egilsson, forstjóri Syndis.