LOGOS lögmannsstofa hefur tekið í notkun lausn hugbúnaðarfyrirtækisins Justikal sem gerir stofunni kleift að senda öll gögn til héraðsdómstóla á rafrænu formi.
Hingað til hafa gögn verið send til dómstóla á pappír þrátt fyrir miklar tækniframfarir. Með innleiðingu nýrra laga nr. 55/2019 og með úrræðum dómstóla í heimsfaraldrinum hafa rafrænar gagnasendingar nú verið leyfðar í takt við stafvæðingu samfélagsins. Með þessum breytingum minnkar pappírsnotkun og akstur með gögn.
„Þetta skref er hluti af sjálfbærnistefnu LOGOS sem mun spara tíma og auka skilvirkni starfsfólks stofunnar. Þetta er einnig hluti af því að veita framúrskarandi þjónstu, en með Justikal geta viðskiptavinir okkar í framtíðinni fylgst með framvindu sinna mála fyrir dómstólum og fengið sjálfvirkar tilkynningar um leið og einhverjar breytingar verða,“ segir Benedikt Egill Árnason, framkvæmdastjóri LOGOS.