
Sérfræðisvið
Maren Albertsdóttir lögmaður er með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hún er með LL.M. gráðu í alþjóðlegum gerðardómsrétti frá Stokkhólmsháskóla. Hún hefur víðtæka þekkingu á sviði stjórnsýsluréttar og tengdum réttarsviðum þar sem reynir á reglur opinbers réttar. Maren starfaði um árabil hjá umboðsmanni Alþingis, meðal annars sem aðstoðarmaður og skrifstofustjóri umboðsmanns þar sem hún hafði yfirumsjón með starfsemi umboðsmanns. Hún var skipuð aðalmaður í kærunefnd jafnréttismála árið 2024 og hefur sinnt kennslu í námskeiðum í stjórnsýslurétti við laga- og stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands frá árinu 2014.
- LOGOS lögmannsþjónusta, 2022-
 - Umboðsmaður Alþingis, 2012-2022
 - LOGOS lögmannsþjónusta, 2008-2012
 - Friðrik Skúlason ehf., 2000-2005
 
- Héraðsdómslögmaður, 2024
 - Stockholms Universitet, LL.M. í alþjóðlegum gerðardómsrétti, 2017
 - Háskóli Íslands, mag. jur., 2010
 - Háskóli Íslands, BA í lögfræði, 2008
 - Háskóli Íslands, BA í íslensku, 2000
 
