Fjárhagsleg endurskipulagning og gjaldþrotaréttur

Sérfræðingar LOGOS í fjárhagslegri endurskipulagningu og gjaldþrotarétti veita sérhæfða ráðgjöf, hvort sem um er að ræða greiðslustöðvun eða gjaldþrotaskipti, frjálsa eða þvingaða nauðasamninga eða hvers kyns aðra skuldaaðlögun.

Lögfræðingur á gangi á 2. hæð í skrifstofuhúsnæði LOGOS lögmannsþjónustu

LOGOS hefur einnig tekið að sér hagsmunagæslu fyrir lánadrottna gjaldþrotabúa og fyrirtæki í greiðsluvanda.

Ráðgjöf LOGOS á þessu sviði tekur til samningagerðar, breytinga á rekstrarformum, uppgjöri viðskipta, lausn deilumála, munnlegs málflutnings, skattalegum afleiðingum breytinga og annarra þátta sem reynir á við gjaldþrot og fjárhagslega endurskipulagningu.

LOGOS hefur náð góðum árangri í ráðgjöf við stóra og smáa aðila í greiðsluvanda sem og kröfuhafa slíkra aðila, svo sem banka, eignarhaldsfélög, skipafélög, lyfjasamsteypur og lífeyrissjóði. Sérfræðiþekking, stærð og sveigjanleiki LOGOS tryggir að hæfilegur fjöldi starfsmanna getur sinnt því verkefni sem liggur fyrir hverju sinni, innan þess tíma sem nauðsyn krefur. Að þessu leyti nýtur LOGOS sérstöðu á íslenskum markaði og er því ákjósanlegur kostur þegar leita þarf ráðgjafar vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar eða gjaldþrotaskipta, hvort sem er fyrir fyrirtæki í greiðsluvanda eða kröfuhafa þeirra.

Samkvæmt álitsgjöfum matsfyrirtækisins The Legal 500 veita lögmenn LOGOS bæði skuldurum og kröfuhöfum framúrskarandi þjónustu.

„LOGOS has substantial practice in Iceland. They are unique in the depth and breadth of their practice. They are well connected in the business and political communities and are excellent colleagues to work with.“

- The Legal 500

Tengdar fréttir og greinar