Verktakaréttur, eignaréttur og fasteignakaup

LOGOS hefur í áraraðir verið leiðandi lögmannsstofa á Íslandi á sviði verktakaréttar. Við höfum ráðlagt bæði verktökum og verkkaupum um samningagerð, rekstur verksamninga og úrlausn deilumála.

Loftmynd af byggingarstarfsmönnum á byggingarsvæði

Íslenski verktakamarkaðurinn hefur gengið í gegnum umtalsverðar sveiflur á undanförnum árum, milli mikillar eftirspurnar upp úr árinu 2000 og þess samdráttar sem varð í kjölfar hrunsins. Í dag virðumst við sjá merki um aukin umsvif á verktakamarkaði. Þessar miklu breytingar hafa skapað þörf fyrir sérfræðikunnáttu á lagaumhverfi verktaka og fjármögnunar framkvæmda.

Lögmenn LOGOS aðstoða umbjóðendur sína við hvers kyns mál er varða fasteignir og jarðir ásamt því að sjá um nauðsynlega hagsmunagæslu. Þeir sérhæfa sig í málum er varða ráðgjöf um viðskipti með fasteignir og einnig málum er tengjast göllum á fasteignum.

Á sviði eignaréttar veitum við meðal annars ráðgjöf um lagalegar hliðar fasteignaþróunarverkefna, túlkun og beitingu jarðalaga og samningsbundinna forkaupsréttarákvæða, auk þess sem hvers kyns skipulagsmálefni kalla á aukna sérhæfingu. Þá veita sérfræðingar LOGOS ráðgjöf um skipulag, fjármögnun, leigusamninga og hvað eina annað er varðar fasteignaþróunarverkefni. Slík verkefni hafa færst í vöxt á undanförnum árum og hafa sérfræðingar LOGOS sinnt slíkum verkefnum á Íslandi, Spáni, Bretlandi og víðar.

The Legal 500 gefur LOGOS fyrstu einkunn á sviði verktakaréttar og einkafjármögnunar.

„They are quick to react and work fast, they are responsible in working practices and have extensive knowledge of the environment of construction contractors.“

- The Legal 500

Tengdar fréttir