Árni Vilhjálmsson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti. Hann hefur starfað við lögmennsku síðan árið 1983. Árni var einn af stofnendum LOGOS í ársbyrjun 2000, þar á undan var hann m.a. meðeigandi hjá A&P lögmönnum. Árni hefur mikla reynslu á fjölmörgum sviðum lögfræðinnar, ber þar að nefna hugverkarétt, Evrópurétt, samkeppnisrétt og málflutning. Árni var Ad hoc meðlimur í Eftirlitsstofnun EFTA árin 1998-2004 og sat í stjórnarnefnd European Patent Institute árin 2005-2009. Þá hefur hann sinnt kennslustörfum við lagadeild Háskólans í Reykjavík og hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Árni hefur átt sæti í Disciplinary Appeals Board hjá Evrópsku einkaleyfastofnuninni í Munchen frá árinu 2014. Hann var settur dómari í Landsrétti í tveimur málum árið 2019 og í einu máli í Hæstarétti árið 2020.

Tengdar greinar