Ólafur Arinbjörn Sigurðsson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Landsrétti. Hann hefur mikla reynslu af fjölbreyttri lögfræðiþjónustu við viðskiptalífið og hefur lagt megináherslu á verðbréfamarkaðsrétt, fjármögnun fyrirtækja og regluverk á sviði fjármálaþjónustu. Þá eru einnig hans helstu sérsvið félagaréttur, fjárhagsleg endurskipulagning, samrunar og yfirtökur og raforkusamningar. Ólafur Arinbjörn er hluti af banka- og fjármögnunarteymi LOGOS. Hann hefur starfað hjá LOGOS frá árinu 2003 og sem meðeigandi frá árinu 2006, en áður starfaði hann hjá Kauphöll Íslands. Ólafur Arinbjörn hefur sinnt stundakennslu við viðskiptadeild Háskóla Íslands, lagadeild háskólans á Bifröst og hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Þá var hann aðjúnkt árin 2006-2010 við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Tengdar greinar