Helga Melkorka Óttarsdóttir er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti. Hún er með LL.M. gráðu í Evrópurétti frá Ruprecht Karls Universität í Þýskalandi. Helga Melkorka hefur áralanga reynslu af lögmannsstörfum auk víðtækrar reynslu úr viðskiptalífinu. Hún hóf störf hjá LOGOS árið 2001 og starfaði sem framkvæmdastjóri félagsins á árunum 2013-2019. Helga Melkorka hefur yfirgripsmikla starfsreynslu á sviði samkeppnisréttar og Evrópuréttar. Hún hefur flutt dómsmál fyrir íslenskum dómstólum, samkeppnisyfirvöldum sem og EFTA dómstólnum og rekið fjölmörg mál hjá Eftirlitsstofnun EFTA. Önnur sérsvið hennar eru samkeppnisréttur, fyrirtækjaráðgjöf, fjármálaþjónusta og regluverk. Hún var aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík og við lagadeild Háskóla Íslands þar sem hún sinnti kennslu í Evrópurétti. Helga Melkorka hefur setið í stjórn í ýmsum félögum, m.a. sem stjórnarmaður í Lögmannafélagi Íslands árin 2003-2005, varaformaður árin 2005-2006 og sat í stjórn Viðskiptaráðs 2014-2022. Helga var Ad hoc meðlimur (College Member) í Eftirlitsstofnun EFTA um árabil.

Viðurkenningar
  • Chambers Global 2024 - Helga Melkorka Óttarsdóttir
  • Chambers Europe 2024 - Helga Melkorka Óttarsdóttir
  • The Legal 500 Leading Individual 2023
  • IFLR1000 Highly Regarded 2023
  • IFLR1000 Women Leader 2023

„Helga Óttarsdóttir has deep knowledge of this area both in Iceland and Europe. Her capability also lies in simplifying and putting forward the most important issues of every situation, regardless of how complicated it seems.“

- The Legal 500

Tengdar fréttir og greinar